Fotbolti.net
10.08.12 - 09:26
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Antonio Conte dæmdur í tíu mánaða bann (Staðfest)

Antonio Conte.

Antonio Conte.

Canon

Mynd: Getty Images

Antonio Conte, þjálfari Juventus, hefur verið dæmdur í tíu mánaða bann. Á síðasta tímabili stýrði hann liðinu til sigurs í ítölsku A-deildinni án þess að liðið tapaði leik.

Hann hefur verið dæmdur í bannið fyrir að hafa leynt upplýsingum um hagræðingu úrslita þegar hann var við stjórnvölinn hjá Bari tímabilið 2010-11.
Conte hefur haldið fram sakleysi sínu og sagst ákveðinn í að sanna það.

Réttarhöld vegna nýja Ítalíuskandalsins standa yfir þessa dagana en í maí fór lögreglan í meira en 30 húsleitir vegna málsins.

Conte er ekki bannað að stýra æfingum og undirbúningi hjá Juventus en fær ekki að vera á hliðarlínunni í leikjum.

Þá var Giuseppe Signori, fyrrum sóknarmaður Lazio og ítalska landsliðsins, settur í bann frá afskiptum fótbolta í fimm ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.