10.08.12 - 13:45
Magnús Már Einarsson
Craig Bellamy til Cardiff (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Cardiff City hefur fengið framherjann Craig Bellamy í sínar raðir á nýjan leik frá Liverpool.
Bellamy stóðst læknisskoðun í gær og í dag skrifaði hann undir tveggja ára samning við Cardiff.
Bellamy lék með Cardiff á láni frá Manchester City tímabilið 2010/2011 og var í lykilhlutverki þá.

Hjá Cardiff mun hann leika með Íslendingunum Aroni Einari Gunnarssyni og Heiðari Helgusyni.
Bellamy, sem er 33 ára gamall, mun leika í treyju númer 39 en hann verður klár í slaginn þegar Cardiff mætir Huddersfield í fyrstu umferð í Championship deildinni eftir viku.

Heimild: Heimasíða Cardif