Fotbolti.net
10.08.12 - 19:30
Magnús Már Einarsson

Colin Kazim-Richards til Blackburn (Staðfest)

Colin Kazim-Richards til Blackburn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Blackburn hefur fengið framherjann Colin Kazim-Richards á láni frá tyrkneska félaginu Galatasaray.
Þessi 25 ára gamli Tyrki verður á láni út tímabilið en Blackburn á síðan kost á að kaupa hann.

Steven Kean, stjóri Blackburn, hefur verið í leit að framherja eftir að í ljós kom að Leon Best verður frá keppni fyrri hluta tímabilsins vegna hnémeiðsla.

Fyrr í sumar var Kazim-Richards á reynslu hjá West Ham en hann hefur nú gengið í raðir Blackburn.

Kazim-Richards er tyrkneskur ríkisborgari en hann á 36 landsleiki að baki með Tyrkjum.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.