10.08.12 - 18:46
Ívan Guðjón Baldursson
Romelu Lukaku lánaður til West Brom (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Romelu Lukaku, belgískur sóknarmaður Chelsea, er kominn til West Bromwich Albion á láni út tímabilið.
Lukaku er 19 ára og kom til Chelsea fyrir ári fyrir 13 milljónir punda en spilaði lítið sem ekkert á síðasta tímabili þar sem hann kom við sögu í átta leikjum án þess að skora mark.

,,Ég er mjög ánægður með að bjóða Romelu velkominn til félagsins,\" sagði Steve Clarke, stjóri West Brom.
,,Hann er sterkur og kraftmikill sóknarmaður sem er ungur, ákafur og ólmur í að læra og verða betri leikmaður.
,,Mörg topplið í Evrópu voru á eftir Romelu í fyrra og mörg ensk úrvalsdeildarfélög hafa reynt að fá hann til sín á láni í sumar, þannig að við gerðum mjög vel að klófesta hann.\"