Fotbolti.net
10.08.12 - 18:57
Ívan Guðjón Baldursson

Joe Allen til Liverpool (Staðfest)

Joe Allen til Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Velski miðjumaðurinn Joe Allen er genginn til liðs við Liverpool samkvæmt opinberri vefsíðu félagsins.

Allen stóðst læknisskoðun og er búinn að skrifa undir samning en ekki er greint frá því hversu langur samningurinn er.
,,Mér líður ótrúlega,\" voru fyrstu orð Joe Allen þegar hann var tekinn í viðtal af Liverpoolfc.com.

,,Allir þekkja sögu félagsins, þetta er risastórt félag og ég er hæstánægður með að vera orðinn að leikmanni félagsins.\"

Allen er 22. ára gamall og er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við Liverpool í sumar eftir að ítalski sóknarmaðurinn Fabio Borini gekk til liðs við félagið.

,,Ég er mjög ánægður að Joe hafi ákveðið að ganga til liðs við okkur,\" sagði Brendan Rodgers.

,,Joe er leikmaður sem mun passa fullkomlega inn í leikmannahópinn sem við erum með fyrir og verður hann mikilvægur á miðjunni þar sem hann getur stýrt spili og hraða leiksins.\"

Heimild: Liverpool FC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.