fös 10. ágúst 2018 15:33
Elvar Geir Magnússon
Batshuayi lánaður frá Chelsea til Valencia (Staðfest)
Michy Batshuayi hefur skorað 8 mörk í 19 landsleikjum fyrir Belgíu.
Michy Batshuayi hefur skorað 8 mörk í 19 landsleikjum fyrir Belgíu.
Mynd: Getty Images
Belgíski sóknarmaðurinn Michy Batshuayi er genginn í raðir Valencia á lánssamningi frá Chelsea.

Batshuayi, sem er 24 ára, gerði eins árs lánssamning en engin klásúla er varðandi hugsanleg framtíðarkaup.

Árið 2016 eyddi Chelsea 33 milljónum punda í að fá sóknarmanninn frá Marseille. Á síðasta tímabili fékk Dortmund hann lánaðan til að fylla skarð Pierre-Emerick Aubameyang sem fór til Arsenal.

Batshuayi skoraði fimm mörk í fyrstu þremur leikjum sínum í Þýskalandi.

Hjá Valencia fær Batshuayi tækifæri til að spila í Meistaradeildinni á meðan Chelsea er í Evrópudeildinni að þessu sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner