Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 10. ágúst 2018 15:08
Magnús Már Einarsson
Kurt Zouma til Everton á láni (Staðfest)
Mættur til Everton.
Mættur til Everton.
Mynd: Getty Images
Everton hefur fengið varnarmanninn Kurt Zouma á láni frá Chelsea út tímabilið.

Everton fékk framlengdan frest til að klára skiptin eftir að félagaskiptaglugginn á Englandi lokaði í gær.

Zouma hefur nú fengið leikheimild með Everton en hann bætist í hópinn með Yerry Mina og Andre Gomes sem komu einnig til Everton í gær.

Zouma var í láni hjá Stoke á síðasta tímabili en þessi 23 ára gamli leikmaður hefur ekki ennþá náð að brjótast almennilega inn í aðallið Chelsea.

Everton mætir Wolves í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á morgun klukkan 16:30.
Athugasemdir
banner
banner
banner