Fotbolti.net
07.08.26 - 09:28
Elvar Geir Magnússon

Noregur kallar eftir afsögn Infantino - „Rúinn trausti“

Lise Klaveness, forseti norska fótboltasambandsins.

Lise Klaveness, forseti norska fótboltasambandsins.

Canon

Mynd: EPA

„Við metum að hann sé rúinn trausti. Áhyggjur hafa aukist jafnt og þétt í stjórnartíð hans. Hann hefur algjörlega misst okkar traust og við teljum að það sé engin leið til baka fyrir hann," segir Lise Klaveness, forseti norska fótboltasambandsins.

Eftir fund norska sambandsins kallar það eftir afsögn Gianni Infantino, forseta FIFA.
UEFA lætur skoða hvort það hafi verið maðkur í mysu Infantino
TENGT EFNI

UEFA lætur skoða hvort það hafi verið maðkur í mysu Infantino

„Við sitjum uppi með mjög sundrað alþjóðlegt samstarf, það er ringulreið. Þess vegna munum við krefjast þess að hann segi af sér tafarlaust, svo að alþjóðlegt fótboltasamfélag geti horft fram á veginn og unnið saman í framtíðinni."

Infantino hefur fengið gagnrýni úr öllum áttum eftir áætlanir um að hleypa fjárfestum að heimsmeistaramótinu og öðrum innviðum FIFA. Tillagan mætti gríðarlegri andstöðu um allan heim og var dregin til baka.
Noregur kallar eftir afsögn Infantino - „Rúinn trausti“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.