Fotbolti.net
10.10.12 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Brynjar Þór tekur við Fjarðabyggð (Staðfest)

Brynjar Þór tekur við Fjarðabyggð (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brynjar Þór Getsson hefur verið ráðinn þjálfari meistara og 2. flokks Fjarðabyggðar.
Brynjar hefur skrifað undir tveggja ára samning en hann tekur strax til starfa hjá Fjarðabyggð.

,,Við hjá Fjarðabyggð bjóðum Brynjar velkominn til starfa en Brynjar er ráðinn til tveggja ára til að stjórna meistaraflokki og 2. flokki karla ásamt aðstoðarþjálfara sem ráðinn verður síðar,\" segir á heimasíðu Fjarðabyggðar.

Fjarðabyggð féll í sumar úr annarri deildinni og eftir tímabilið ákváðu þjálfararnir Heimir Þorsteinsson og Haukur Ingvar Sigurbergsson að láta af störfum.

Brynjar er 38 ára en hann þekkir til á Austurlandi eftir að hafa þjálfað Huginn frá 2003 til 2005 bæði í 2. og 3. deild.

Brynjar þjálfaði síðan hálft sumar hjá ÍR og síðan hjá Álftanesi áður en hann hélt til Bandaríkjanna í nám ásamt því að vera aðstoðarþjálfari hjá háskólaliði Auburn Montgomery. Nú í sumar þjálfaði Brynjar 2. flokk HK en hann hætti störfum þar í vikunni
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.