10.10.12 - 14:55
Elvar Geir Magnússon
Gunnar Guðmunds tekinn við Selfossi (Staðfest)

Gunnar Guðmundsson skrifaði undir þriggja ára samning við Selfoss.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfyssingar hafa ráðið Gunnar Guðmundsson, fyrrum þjálfara HK, sem nýjan þjálfara sinn. Selfoss féll úr Pepsi-deildinni í sumar.
Gunnar stýrði HK 2004-2008 en hefur þjálfað U17 landsliðið með góðum árangri síðustu ár.

Verið er að kynna Gunnar til leiks í Íslandsbanka á Selfossi. Þar er fréttaritari Fótbolta.net og mun taka viðtal við Gunnar.
Logi Ólafsson hefur stýrt Selfossi síðustu tvö ár en hann hefur verið ráðinn til Stjörnunnar. Á vefsíðunni sunnlenska.is er sagt að stjórn Selfoss hafi átt í viðræðum við Gunnar áður en Logi tók við.
Búast má við miklum breytingum á leikmannahópi Selfoss og fer það í hendurnar á Gunnari að byggja upp nýtt lið.