Fotbolti.net
10.10.12 - 18:15
Magnús Már Einarsson

Magnús Gylfason ráðinn til Vals (Staðfest)

Magnús Gylfason ráðinn til Vals (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magnús Gylfason hefur verið ráðinn þjálfari Vals en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.
Magnús tekur við af Kristjáni Guðmundssyni sem hætti þjálfun hjá félaginu fyrir helgi.

,,Ég var báðum áttum hvort ég ætti að hætta í þjálfun eða ekki en þegar þetta kom upp á borðið þá fannst mér þetta vera mjög spennandi verkefni og ég hlakka mikið til,\" sagði Magnús við Fótbolta.net í kvöld.

Magnús gerði fína hluti með ÍBV á nýliðnu tímabili en hann hætti óvænt með liðið þegar það var í öðru sæti deildarinnar og þrjár umferðir voru eftir.

Nánar verður rætt við Magnús í viðtali hér á Fótbolta.net innan skamms.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.