10.10.12 - 21:00
Brynjar Ingi Erluson
Luis Boa Morte til Chesterfield (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Portúgalski snillingurinn Luis Boa Morte hefur skrifað undir samning við Chesterfield í ensku þriðju deildinni, en hann gildir fram í janúar.
Boa Morte, sem er 35 ára gamall er enska boltanum vel kunnugur, en hann kom fyrst til Englands árið 1997 er Arsene Wenger keypti hann til Arsenal og á hann yfir 300 leiki í enska boltanum.
Hann var síðast á mála hjá Orlando Pirates í Suður-Afríku og Toronto í MLS-deildinni, en síðasti klúbbur sem hann lék með á Englandi er West Ham United.
Undanfarnar vikur hefur hann æft með Fulham, en hann lék árum áður með þeim líka. Nú hefur þó skrifað undir samning við Chesterfield, en fyrrum liðsfélagi hans hjá Fulham, Mark Crossley, er aðstoðarþjálfari félagsins.
Boa Morte á 28 leiki að baki fyrir portúgalska landsliðið, en hann getur leikið sinn fyrsta leik fyrir Chesterfield gegn Dagenham & Redbridge á laugardag.

Heimild: Sky