Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 10. október 2018 18:02
Elvar Geir Magnússon
Mynd: Pogba fékk sér nýja klippingu fyrir leikinn gegn Íslandi
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Fótboltamaðurinn Paul Pogba skartaði nýrri hárgreiðslu á æfingu franska landsliðsins í dag.

Frakkarnir eru að búa sig undir vináttulandsleik gegn Íslandi sem verður annað kvöld, klukkan 19 að íslenskum tíma.

Það var létt yfir Pogba á æfingunni og hann er greinilega ánægður með að fá smá frí frá því sem er í gangi hjá Manchester United.

Í nýju klippingunni hjá Pogba er elding eins og sjá má á myndinni hér að neðan.

Búist er við því að Pogba byrji gegn Íslandi á morgun.

Líklegt byrjunarlið Frakklands miðað við æfinguna: Lloris - Pavard, Varane, Kimpembe, Digne - Nzonzi, Pogba - Thauvin, Griezmann, Dembele - Mbappe.
Athugasemdir
banner
banner
banner