Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fim 10. október 2019 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hörkulið leikmanna sem hafa lagt skóna á hilluna á árinu
ESPN FC birti í gærkvöldi færslu á Twitter reikningi sínum. Þar má sjá mynd af byrjunarliði leikmanna sem hafa lagt skóna á hilluna á árinu.

Mörg risastór nöfn má sjá þar. Í markinu stendur Petr Cech(Chelsea/Arsenal). Í vörninni eru þeir Ashley Cole(Chelsea/Arsenal), Andrea Barzagli(Juventus), Juan(Leverkusen/Roma) og Patrice Evra(Manchester United/Juventus).

Á miðjunni eru þeir Wesley Sneijder(Inter/Real Madrid), Bastian Schweinsteiger(Bayern Munchen/Manchester United), Xavi(Barcelona) og Arjen Robben(Real Madrid/Chelsea/Bayern Munchen).

Frammi eru svo þeir Samuel Eto'o(Barcelona/Inter/Chelsea) og Fernando Torres(Atletico/Liverpool/Chelsea)*



*Liðin sem leikmennirnir hafa leikið með eru fleiri.
Athugasemdir
banner