Fotbolti.net
10.10.26 - 11:50
Brynjar Ingi Erluson

Iraola ver Barcola - „Vil að hann haldi áfram að koma sér í þessi færi“

Bradley Barcola

Bradley Barcola

Canon

Mynd: EPA

Andoni Iraola, stjóri Liverpool, er ánægður með það sem hann hefur séð til franska vængmannsins Bradley Barcola og segir fólk þurfa að horfa á frammistöðuna í heild, ekki bara mörkin.
Barcola kom til Liverpool frá Paris Saint-Germain fyrir 123 milljónir punda undir lok félagaskiptagluggans. Hann hefur enn hvorki skorað né lagt upp mark fyrir félagið en Iraola hefur litlar áhyggjur.

„Ég er ekki sammála því að hann sé að ganga í gegnum slæman kafla. Vandinn hjá vængmönnum og framherjum er að ef þeir skora ekki er sagt að þeir hafi ekki spilað vel. Við verðum að horfa á leikina sjálfa. Hann klúðraði tveimur eða þremur frábærum færum í fyrsta leiknum gegn Atlético Madríd og ég sagði eftir leikinn að mér væri alveg sama. Nei, auðvitað er mér ekki alveg sama en ég vil sjá hann koma sér í þessar stöður.“

„Ég sá að hann fékk nokkur góð færi með landsliðinu en skoraði ekki. Ég vil samt að hann haldi áfram að koma sér í þessi færi,“
sagði Iraola.

Alexander Isak og Cody Gakpo verða báðir frá vegna meiðsla gegn Manchester City um helgina og gæti Barcola því leikið fremstur.

„Hann er frábær leikmaður og ég held að hann geti spilað hvar sem er í framlínunni. Hann hefur líklega spilað mest vinstra megin en líka sem framherji og á hægri vængnum. Hann getur leyst allar þrjár stöðurnar,“ sagði Iraola og ítrekaði mikilvægi Barcola fyrir liðið.
Iraola ver Barcola - „Vil að hann haldi áfram að koma sér í þessi færi“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.