Fotbolti.net
10.10.26 - 10:42
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu frábæra björgun markvarðarins

Niek Schiks í leik með PSV á síðasta tímabili

Niek Schiks í leik með PSV á síðasta tímabili

Canon

Mynd: EPA

Niek Schiks, markvörður RKC Waalwijk, bjargaði á magnaðan hátt í leiknum gegn Heracles í hollensku B-deildinni í gær.
Schiks, sem er á láni hjá Waalwijk frá PSV, átti tilþrif leiksins gegn Heracles þótt liðið hafi tapað 3-0.

Staðan var markalaus þegar rúmar tuttugu mínútur voru búnar af leiknum.

Jean-Paul N'Djoli skaut úr miðjum teignum og fór boltinn á milli fóta Sem Scheperman, sem stóð í rangstöðu. Schiks var að kalla eftir rangstöðu þegar boltinn fór í stöngina og rúllaði eftir marklínunni, en hann var fljótur að átta sig og náði að sparka honum frá með hælnum.

Mögnuð björgun sem má sjá hér fyrir neðan, en hún breytti litlu fyrir Waalwijk þar sem Heracles vann öruggan sigur.

Heracles er á toppi deildarinnar með 25 stig en Waalwijk í níunda sæti með 14 stig.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.