Fotbolti.net
10.10.26 - 11:11
Brynjar Ingi Erluson

Þjálfari Króatíu: Ísland ógnaði lítið úr opnum leik

Þjálfari Króatíu: Ísland ógnaði lítið úr opnum leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

KvennaboltinnEimskip
Nenad Gracan, þjálfari króatíska kvennalandsliðsins, telur Ísland meðal tíu bestu landsliða heims en segir íslenska liðið lítið hafa skapað sér úr opnum leik í 4-0 sigri á Króatíu í umspili um sæti á HM í gær.
Einkunnir Íslands - Systrasýning
TENGT EFNI

Einkunnir Íslands - Systrasýning

Lestu um leikinn: Króatía 0 - 4 Ísland
Ísland er komið með annan fótinn í úrslit umspilsins eftir sigurinn á Króötum. Arna Eiríksdóttir skoraði tvö mörk, systir hennar Hlín eitt og fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir eitt úr vítaspyrnu.

„Ísland er með eitt af tíu bestu landsliðum heims og þetta er því góður skóli fyrir okkur. Ég er svekktur því við spiluðum vel og af yfirvegun en fengum á okkur þrjú mörk eftir föst leikatriði. Að öðru leyti sköpuðu þær ekki mikla hættu. Við vorum vel skipulagðar og fengum tvö frábær færi en svona er fótboltinn. Við þurfum að taka það jákvæða úr leiknum og það var nóg af því. Við verðum að halda áfram á þessari braut.“

„Þarna liggur munurinn. Ég myndi ekki endilega segja að hann liggi í tækninni en þær eru fljótari og sterkari. Þær fengu margar skyndisóknir en okkur tókst að verjast þeim vel.“

„Við nýttum ekki færin okkar og Íslendingar refsuðu okkur fyrir mistökin. Við fengum á okkur mark því við dekkuðum ekki nógu vel en það er óþarfi að greina þetta um of. Vonandi læra stelpurnar af þessu. Svona er kvennafótboltinn, jafnvel þegar maður mætir liðum sem eru ekki í sama flokki og Spánn. Þær fóru af krafti í einvígin og um leið og þú gefur eftir ertu í vandræðum,“
sagði Gracan.

Hann var einnig spurður út í vítaspyrnuna sem Ísland fékk í síðari hálfleik.

„Ég sá þetta ekki nógu vel en mér fannst dómurinn helvíti strangur. Það sem við eigum helst að sjá eftir er að hafa ekki nýtt færin okkar,“ sagði Gracan.
Systurnar Arna og Hlín skoruðu báðar

Systurnar Arna og Hlín skoruðu báðar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.