Fotbolti.net
10.10.26 - 11:36
Brynjar Ingi Erluson

Mourinho: Arteta segir þetta bara byrjunina en hefur verið þarna í mörg ár

Jose Mourinho

Jose Mourinho

Canon

Mynd: EPA

Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, segir mun meiri kröfur gerðar hjá félaginu en annars staðar.
Mourinho tók aftur við Real Madrid í sumar, þrettán árum eftir að hann yfirgaf félagið.

Byrjunin hefur verið brösugleg en hjá Real Madrid er ætlast til þess að liðið berjist um alla titla á hverju tímabili. Mourinho segir kröfurnar allt aðrar en víða annars staðar og tók Arsenal sem dæmi.

„Í gær las ég nokkuð áhugavert sem myndi aldrei gerast hjá Real Madrid.“

„Mikel Arteta framlengdi samning sinn við Arsenal og sagði að liðið væri rétt að byrja, að þetta væri aðeins upphafið. Samt hefur hann verið þarna í mörg ár.“

„Kröfurnar hér eru einfaldlega allt aðrar,“
sagði Mourinho.

Arteta hefur stýrt Arsenal í tæp sjö ár og skrifaði nýverið undir nýjan samning. Hann gerði liðið að Englandsmeisturum í vor í fyrsta sinn í 22 ár. Það var annar stóri titill hans hjá félaginu en Arsenal vann einnig enska bikarinn á hans fyrsta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.