Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   þri 10. nóvember 2020 19:47
Aksentije Milisic
Sjóðheitur Elías gerði þrennu fyrir Excelsior
Elías Már Ómarsson, leikmaður Excelsior í Hollandi, heldur áfram að spila frábærlega fyrir liðið og gerði hann nú þrennu í kvöld.

Excelsior mætti TOP Oss í hollensku B-deildinni og vann liðið 3-0 sigur. Elías gerði öll þrjú mörkin og er hann nú kominn með 13 deildarmörk á þessari leiktíð og tvö í bikarnum.

Excelsior er sem stendur í 8. sæti deildarinnar eftir ellefu umferðir.

Margir hafa verið að kalla eftir því að Elías verði valinn í landsliðið og ljóst er að hann er að gera sterkt tilkall til þess.




Athugasemdir