Fotbolti.net
10.11.26 - 19:55
Brynjar Ingi Erluson

Barnabarn Cruyff valið í unglingalandslið Bandaríkjanna

Shae Cruijff-Beane er barnabarn Johan Cruyff

Shae Cruijff-Beane er barnabarn Johan Cruyff

Canon

Mynd: Bandaríska fótboltasambandið

Shae Cruijff-Beane, barnabarn hollensku goðsagnarinnar Johan Cruyff, hefur verið valinn í U18 ára landslið Bandaríkjanna.
Cruijff-Beane er sonur Chantal, dóttur Johan, en hann er uppalinn á Spáni og leikur með unglingaakademíu Gimnastic de Tarragona.

Johan er einn besti fótboltamaður allra tíma og var í lykilhlutverki í Total Football-leikstílnum sem Rinus Michels gerði frægan með Ajax og hollenska landsliðinu.

Sú hugmyndafræði hafði síðar mikil áhrif á þróun fótboltans og lagði meðal annars grunninn að tiki-taka leikstílnum sem Pep Guardiola gerði frægan, auk þess að hafa áhrif á þróun hápressunnar sem Ralf Rangnick og síðar Jürgen Klopp urðu þekktir fyrir.

Cruijff-Beane þykir mikið efni, en Ben Cross, þjálfari bandaríska U18 ára landsliðsins, ákvað að velja hann í hópinn eftir að hafa komist að því að hann er með bandarískt vegabréf í gegnum föður sinn, Todd Beane.

Það er þó ekki aðeins barnabarn Cruyff sem vekur athygli í landsliðshópnum, því þar er einnig Jordan Michael, sem leikur með Flamengo í Brasilíu.

Hann er nefndur eftir körfuboltagoðsögninni Michael Jordan, en það er nokkuð þekkt í Brasilíu að börn séu skírð í höfuðið á frægu íþróttafólki, tónlistarmönnum og jafnvel teiknimyndapersónum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.