Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 11. janúar 2023 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Óskar framlengir við Fram
Í baráttunni síðasta sumar.
Í baráttunni síðasta sumar.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Fram tilkynnti í gærkvöldi að Óskar Jónsson hefði framlengt samning sinn við félagið til ársins 2024.

Óskar er fæddur árið 1997 og hefur leikið 29 leiki í íslandsmóti og bikar með Fram undanfarin tvö tímabil. Í sumar kom hann við sögu í átta deildarleikjum og tveimur bikarleikjum.

Óskar er uppalinn í Breiðabliki og hefur á sínum ferli leikið fyrir m.a. Þór Akureyri, Gróttu og ÍR áður en leið hans lá í fagurblátt.

„Óskar er fjölþættur leikmaður sem getur brugðið sér í flest hlutverk, auk þess bera þjálfarar og leikmenn honum söguna gríðarlega vel, vinnusamur og metnaðarfullur leikmaður. Starfslið og stjórn eru ánægð að hafa náð samningum við Óskar og verður gaman að fylgjast með framgangnum í sumar," sagði Agnar Þór Hilmarsson formaður knd. Fram.

Komnir
Adam Örn Arnarson frá Breiðabliki (var á láni hjá Leikni)
Aron Jóhannsson frá Grindavík

Farnir
Alex Freyr Elísson í Breiðablik
Almarr Ormarsson hættur

Samningslausir
Stefán Þór Hannesson
Orri Gunnarsson
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner