Sigurður Breki Kárason hefur leikið afar vel með KR á undirbúningstímabilinu til þessa. Hann er fæddur árið 2009 en tók sín fyrstu skref í Bestu deildinni síðasta sumar. Hann spilaði þá þrjá leiki með KR í Bestu deildinni og vakti sérstaklega mikla athygli þegar hann byrjaði gegn Valsmönnum.
Sigurður Breki er afar spennandi leikmaður en rætt var um það í útvarpsþættinum Fótbolti.net síðasta laugardag að hann gæti tekið að sér stærra hlutverk í KR-liðinu í sumar.
Þegar rætt var um hverjum væri spennandi að fylgjast með í KR, þá sagði Valur Gunnarsson: „Sigurður Breki hefur verið frábær á undirbúningstímabilinu skilst mér."
„Hann er víst búinn að taka yfir æfingar hjá KR og verið gjörsamlega geggjaður," sagði Elvar Geir Magnússon og bætti við:
„Ég heyrði að hann yrði fyrsti maður á blað hjá Óskari Hrafni, KR-ingar ætli að spila honum því hann hefur verið það frábær á æfingum. Ég hitti góðan mann sem tengist KR og hann var að segja mér einmitt frá æfingum hjá KR."
Sigurður Breki hefur byrjað fyrstu tvo leiki KR í Lengjubikarnum og er klárlega leikmaður til að fylgjast með í sumar.
Athugasemdir


