Stuðningsmenn Tottenham hafa tekið upp á því að syngja um Mauricio Pochettino, fyrrum stjóra liðsins. Thomas Frank, núverandi stjóri liðsins, segir það verðskuldað.
Árangur Tottenham á tímabilinu hefur verið skelfilegur og liðið er í raun bara í fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni.
Árangur Tottenham á tímabilinu hefur verið skelfilegur og liðið er í raun bara í fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni.
Margir stuðningsmenn liðsins, flestir líklega, vilja losna við Frank og er litið á Pochettino sem sterkan kost í starfið. Pochettino er í dag landsliðsþjálfari Bandaríkjanna en hann náði áður frábærum árangri með Spurs og er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum.
Frank var spurður út í söngva stuðningsmanna og sagði þá:
„Hann er goðsögn hérna. Hann vann ekki bikar en hjálpaði til við að taka næstu skref. Þeir voru nálægt því að vinna ensku úrvalsdeildina undir hans stjórn og komust í úrslitaleik Meistaradeildarinnar."
„Pochettino vann frábært starf hérna og er goðsögn. Ef stuðningsmennirnir syngja nafn hans, þá er það verðskuldað."
Athugasemdir

