Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
Anton Ingi: Það opnuðust flóðgáttir í vörninni
Guðni Eiríks: Ég kenndi henni þetta í 8. flokki
Einar Guðna: Þetta var mjög skrítið
Tekur tapið á sig - „Þór/KA mun komast upp úr þessu"
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
   lau 11. apríl 2026 19:19
Brynjar Ingi Erluson
Badu: Ánægður að hafa unnið leikinn svona miðað við hvernig hann spilaðist
Daniel Badu
Daniel Badu
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Daniel Badu, þjálfari Vestra, var nokkuð sáttur með frammistöðuna í 1-0 sigrinum á Leikni í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í dag.

Lestu um leikinn: Vestri 1 -  0 Leiknir R.

Badu hrósaði framlaginu en segir Vestra hafa vantað gæðin. Hann gat þó tekið eitthvað jákvætt úr frammistöðuna.

„Hæstánægður með að hafa unnið leikinn miðað við hvernig hann spilaðist.“

„Ég var ánægður með framlagið og samheldnina, en það vantaði gæðin á köflum en klárlega hægt að taka margt jákvætt úr þessum leik,“
sagði Badu við Fótbolta.net.

Vestri mætir Gróttu í 16-liða úrslitum en hann er ekki byrjaður að pæla í þeim leik. Næsti leikur Vestra er gegn Grindavík í opnunarumferð Lengjudeildarinnar.

„Ég er ekki að hugsa of mikið út í það núna en mun gera það þegar sá tími kemur. Auðvitað betra að spila á heimavelli, en andstæðingurinn skiptir okkur engu máli.“

„Það er mikil tilhlökkun. Við höfum tvær vikur til að undirbúa okkur og hef hlakkað til þess að hafa völlinn til að æfa og allir leikmennirnir eru að komast í form þannig er spenntur að mæta Grindavík eftir tvær vikur.“


Badu, sem tók við sem aðalþjálfari Vestra undir lok síðasta árs, segist ánægður með hópinn og nú sé bara að slípa hann til fyrir Íslandsmótið.

„Ég er ótrúlega ánægður með hópinn og núna þurfa allir að leggja á vogarskálarnar. Allir eru að komast í betra form og þetta er allt að koma,“ sagði Badu í lokin.
Slapp