Fotbolti.net
11.04.26 - 23:00
Brynjar Ingi Erluson

Hrósar Ngumoha sem setti met á Anfield - „Hann er óttalaus“

Rio Ngumoha gerði annað deildarmark sitt í dag

Rio Ngumoha gerði annað deildarmark sitt í dag

Canon

Mynd: EPA

Englendingurinn Rio Ngumoha hefur sannað það að hann er tilbúinn í byrjunarlið Liverpool og skapaði hann alvöru höfuðverk fyrir Arne Slot, stjóra liðsins, með frammistöðu sinni í 2-0 sigrinum á Fulham í dag.
England: Langþráður og dýrmætur sigur Liverpool
TENGT EFNI

England: Langþráður og dýrmætur sigur Liverpool

Ngumoha kynnti sig fyrir áhugamönnum ensku úrvalsdeildarinnar í byrjun tímabilsins með dramatísku sigurmarki gegn Newcastle, en Slot hefur passað sig að henda honum ekki of hratt í hlutina.

Hann hefur fengið fáar mínútur til að spreyta sig en byrjaði gegn Fulham í dag og kom að báðum mörkunum.

Vængmaðurinn skoraði annað deildarmark sitt á 36. mínútu og átti þátt í seinna markinu sem Mohamed Salah skoraði.

Þar með varð hann yngstur til að skora í deildarleik með Liverpool á Anfield. Ótrúlegt afrek og fékk hann veglegt hrós frá Jamie Redknapp á Sky Sports.

„Rio Ngumoha er óttalaus. Hann hlustar líklega ekki á hávaðann eins og reyndari leikmennirnir þegar hlutirnir ganga illa.“

„Hann naut baráttunnar gegn Timothy Castagne. Við sáum þetta með Max Dowman og Everton. Ungu leikmennirnir þurfa bara stundum að fá tækifærið og vera kastað í djúpu laugina til að sjá hvernig þeir tækla það. Svo lengi sem þeir eru með gæðin og persónuleikann sem Rio svo sannarlega hefur þá geta þeir stigið upp. Sumir stjórar eru hræddir við að henda ungu leikmönnunum inn á,“
sagði Redknapp.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.