Fotbolti.net
11.05.22 - 20:27
Ívan Guðjón Baldursson

England: Þægilegt fyrir Chelsea gegn tíu leikmönnum Leeds

England: Þægilegt fyrir Chelsea gegn tíu leikmönnum Leeds
Canon

Mynd: EPA

Leeds 0 - 3 Chelsea
0-1 Mason Mount ('4)
0-2 Christian Pulisic ('55)
0-3 Romelu Lukaku ('83)
Rautt spjald: Daniel James, Leeds ('24)

Leeds United tók á móti Chelsea í fyrsta leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Heimamenn í Leeds þurftu sigur í fallbaráttunni en Mason Mount var búinn að koma gestunum yfir eftir aðeins fjórar mínútur. Reece James gaf einfalda sendingu á Mount sem kláraði með frábæru skoti við vítateigslínuna.

Tuttugu mínútum síðar varð fallbaráttan enn harðari fyrir Leeds þegar Daniel James fékk beint rautt spjald fyrir að tækla Mateo Kovacic illa. James náði boltanum en tókst ekki að stöðva sig og endaði á að fara í stórhættulega tæklingu. Kovacic reyndi að halda áfram að spila en var skipt útaf sex mínútum síðar.

Leeds reyndi að standa í gestunum frá London en sá aldrei til sólar eftir að Christian Pulisic tvöfaldaði forystuna snemma í síðari hálfleik.

Romelu Lukaku gerði út um viðureignina á 83. mínútu og niðurstaðan sanngjarn sigur.

Leeds er í fallsæti með 34 stig þegar tvær umferðir eru eftir. Burnley er fyrir ofan á markatölu með jafn mörg stig og leik til góða. 

Chelsea er áfram í þriðja sæti, fjórum stigum fyrir ofan Arsenal sem á leik til góða.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.