Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 11. júní 2019 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aguero getur slegið tvö met í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar
Mynd: Getty Images
Sergio Aguero er einn allra besti framherji ensku úrvalsdeildarinnar. Aguero kom til Manchester City frá Atletico Madrid árið 2011 og hefur verið nánast óstöðvandi síðan.

Á fimmtudaginn kemst Aguero að því hvaða liði hann mætir í fyrstu umferð deildarinnar á komandi leiktíð.

Aguero elskar að skora í fyrstu umferð og hefur hann skorað sex mörk í fyrstu umferð frá því hann kom í úrvalsdeildina.

Aðeins fjórir leikmenn hafa skorað oftar en Aguero í fyrstu umferð. Alan Shearer(8), Frank Lampard(8), Wayne Rooney(8) og Teddy Sheringham(7) hafa skorað oftar en Aguero.

Ef Aguero skorar þrennu setur hann tvö met. Hann yrði bæði markahæstur í fyrstu umferð í sögu úrvalsdeildarinnar og sá sem hefur skorað flestar þrennur í deildinni.

Aguero gerði þrjár þrennur í fyrra og jafnaði heildarþrennufjölda Alan Shearer, 11 þrennur, með því.

Aðeins sjö leikmenn hafa skorað þrennu í fyrstu umferð deildarinnar og enginn af þeim er einn af 20 markahæstu leikmönnum í sögu deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner