Portúgalski miðjumaðurinn Bernardo Silva er á leið til Real Madrid á Spáni.
Bernardo kvaddi Manchester City í lok tímabils eftir gríðarlega farsæl ár undir stjórn Pep Guardiola.
Hann hefur legið undir feldi síðustu vikur og ætlaði í raun ekki að ákveða framtíð sína fyrr en eftir heimsmeistaramótið en staðan er breytt.
Fabrizio Romano segir Bernardo hafa tekið ákvörðun. Hann mun ganga í raðir Real Madrid og spila undir stjórn Jose Mourinho, en samningurinn er til tveggja ára með möguleika á einu ári til viðbótar.
Barcelona og Atlético Madrid voru einnig í baráttunni um hann, en Bernardo valdi að fara til Real.
Gengið verður frá samkomulaginu á næstu dögum, en ekki er alveg ljóst hvenær hann verður kynntur hjá félaignu.




