Tómas Bent Magnússon var í stóru hlutverki í frábæru liði Hearts á tímabilinu. Liðið var hársbreidd frá því að vinna skoska meistaratitilinn en tapaði í úrslitaleik gegn Celtic í lokaumferðinni.
Tómas bankaði fast á dyrnar hjá landsliðinu í mars en var ekki valinn. Þessi 23 ára miðjumaður á eftir að spila sinn fyrsta landsleik. Það sem merkilegra er er að hann á enga yngri landsleiki undir beltinu.
Tómas var spurður, í viðtali við Fótbolta.net á dögunum, hvort að hann hefði rætt við Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfara um landsliðið.

„Nei, ég hef ekkert rætt við hann. Ef það gerist einhvern tímann er það frábært. Maður getur ekki gert neitt annað en að spila í sínu félagsliði og síðan kemur hitt í ljós.“
Tómas meiddist undir lok tímabils og var ekki til taks fyrir Hearts á lokasprettinum í Skotlandi.
Hann gerði þó tilkall í hópinn sem var valinn í mars, hann var spurður hvort að það væru mikil vonbrigði að fá ekki kallið.
„Nei, ég get nú ekki verið svekktur. Ég er nýkominn út, maður er ennþá að þróast. Ef ég fæ einhvern tímann kallið þá er það bara frábært. Þetta eru frábærir leikmenn á miðjunni í landsliðinu. Ég get ekki verið svekktur,“ sagði Tómas.