Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
banner
   fim 19. mars 2026 14:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arnar um Tómas Bent: Hvern á að taka út?
Tómas Bent hefur átt frábært ár.
Tómas Bent hefur átt frábært ár.
Mynd: Hearts
Vandasamt verk að velja landsliðshóp.
Vandasamt verk að velja landsliðshóp.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Tómas Bent Magnússon hefur verið í stóru hlutverki hjá Hearts sem er á toppi skosku deildarinnar. Tómas var keyptur frá Val í ágúst í fyrra eftir að hafa verið einn besti leikmaður Valsliðsins mánuðina á undan.

Tómas gerði að margra mati tilkall til sætis í landsliðshópnum hjá Arnari Gunnlaugssyni en fékk ekki kallið í þetta skiptið. Arnar var spurður út í Tómas í viðtali við Helga Fannar Sigurðsson á 433 í gær.

„Þetta er hrikalega skemmtileg saga, hann hefur staðið sig hrikalega vel. Ég þekki hann ágætlega, hann kom öðru hverju á æfingar hjá okkur Víkingum á veturna. En svo hugsar maður hvern hann væri að koma í staðinn fyrir, það væri kannski Andri Fannar (Baldursson) sem er að spila í tyrknesku deildinni og hefur ekki gert neitt vitlaust. Það er alltaf þannig að það þyrfti að taka einhvern annan út í staðinn. Hann er að berjast við Hákon (Arnar Haraldsson), Ísak (Bergmann Jóhannesson), Stefán Teit (Þórðarson) og Gylfa (Þór Sigurðsson). Það var því miður ekki alveg pláss fyrir hann núna, en hann er búinn að standa sig frábærlega með Hearts," sagði Arnar.

„Ég er ekki að djóka, við erum með ótrúlegan lista af leikmönnum. Það eru kannski 40 atvinnumenn fyrir utan leikmennina sem spiluðu í Mexíkó og með fullri virðingu fyrir Bestu deildinni er hægt að færa rök fyrir því að liðið gegn Mexíko hafi kannski verið fjórða eða jafnvel fimmta besta liðið okkar - sem er alveg magnað. Þetta er eitthvað sem við höfum ekki haft áður. Ég meina það svo innilega, það eru svo margir leikmenn sem „vantar" í þennan hóp sem fólk kannski þekkir. Svo eru leikmenn eins og Stefán Ingi (Sigurðarson) sem er byrjaður að skora í hollensku úrvalsdeildinni, mjög flottur á móti NAC í síðasta leik og er að koma sterkur upp, ógrynni af leikmönnum," sagði Arnar sem nefndi einnig Benoný Breka Andrésson og Hilmi Rafn Mikaelsson sem dæmi.

Hér að neðan má nálgast viðtal sem Fótbolti.net tók við Arnar eftir fréttamannafundinn í gær.
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Athugasemdir
banner
banner