Óskar Hrafn Þorvaldsson var ekkert sérstaklega hrifinn af frammistöðu Suður-Afríku gegn Mexíkó í opnunarleik HM í kvöld.
Suður-Afríka mætti illa skipulagt til leiks og náði í raun aldrei takt við leikinn.
Óskar var harðorður í garð þeirra í HM-stofunni eftir leik og átti í raun bara erfitt með að skilja uppleggið.
„Nei, köllum bara spaða, spaða. Þeir voru ömurlega lélegir og raunverulega sjálfum sér til skammar. Eiður talaði um það hérna áðan hvernig þeir hefðu hegðað sér. Mér fannst þetta byrja í fyrri hálfleik að ekki vera harðir heldur grófir, skrefinu á eftir og kóróna það með þessu seinna rauða spjaldi sem er algjört agaleysi.“
„Mér fannst þeir gæðalausir og voru að reyna spila út. Mér fannst þeir eins og lið sem hafi ákveðið þremur dögum fyrir mót að byrja að spila út. Það var ekkert verið að lesa hvernig Mexíkóarnir pressuðu og gerðu sömu mistökin í seinni hálfleik og þeir gerðu í fyrri hálfleik. Þeir voru væntanlega með 30 'analysta' sem komu með 40 klippur í hálfleik og það var ekkert. Hugo Broos sat á stól í 90 mínútur, nánast eins og lík.“
„Þetta var bara léleg frammistaða frá upphafi til enda hjá Suður-Afríku.“
„Þeir voru bara drasl og segjum þetta eins og þetta er. Suður-Afríka var drasl og Mexíkó voru flottir,“ sagði Óskar Hrafn í HM-stofunni.
Mexíko hafði 2-0 sigur. Julian Quinones og Raul Jimenez skoruðu mörkin. Tveir leikmenn Suður-Afríku sáu rauða spjaldið og þá fékk Cesar Montes, fyrirliði Mexíkó, reisupassann undir lok leiksins.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!




