Dregið var í 8-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna nú rétt í þessu en bikarmeistarar Selfoss mæta Íslandsmeisturum Val á JÁVERK-vellinum en leikirnir fara fram þann 11.- og 12. ágúst.
Þór/KA sem vann Keflavík 1-0 mætir Lengjudeildarliði Hauka á Akureyri.
FH mætir KR á meðan ÍA fær verðugt verkefni á Skaganum er Breiðablik mætir í heimsókn.
Stærsti leikurinn í 8-liða úrslitunum er á JÁVERKS-vellinum. Bikarmeistarar Selfoss mæta Íslandsmeisturunum í Val. Hægt er að sjá dráttinn í heild sinni hér fyrir neðan.
Drátturinn:
Þór/KA - Haukar
FH - KR
ÍA - Breiðablik
Selfoss - Valur
Athugasemdir