Fotbolti.net
11.08.12 - 13:17
Magnús Már Einarsson

El Hadji Diouf til Leeds (Staðfest)

El Hadji Diouf til Leeds (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

El Hadji Diouf hefur gengið til liðs við Leeds en samningur hans við félagið er ótímabundinn.

Neil Warnock hefur verið að vinna í því að styrkja leikmannahóp Leeds og hann hefur nú krækt í Diouf.

Þessi 31 árs gamli Senegali æfði með Leeds í vikunni og hann verður klár í slaginn þegar keppni í Championship deildinni hefst eftir viku.
Diouf á um það bil 300 leiki að baki í ensku úrvalsdeildinni með Liverpool, Bolton, Sunderland og Blackburn.

Á síðasta tímabili var Diouf síðan á mála hjá Doncaster þar sem hann spilaði 23 leiki.

Heimild: Heimasíða Leeds

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.