Fotbolti.net
11.08.18 - 20:30
Elvar Geir Magnússon

Leicester lánar Slimani til Fenerbahce (Staðfest)

Slimani í leik með Leicester.

Slimani í leik með Leicester.

Canon

Mynd: Getty Images

Tyrkneska félagið Fenerbahce tilkynnti Islam Slimani sem nýjan leikmann sinn með áhugaverðu myndbandi. Það myndband má sjá hér að neðan.

Slimani, sem er þrítugur, kemur til Fenerbahce á eins árs lánssamningi frá Leicester.

Slimani var dýrasti leikmaður sem Leicester hafði keypt þegar hann kom á 28 milljónir punda frá Sporting Lissabon fyrir tveimur árum.

Hann skoraði átta mörk í 35 leikjum fyrir Leicester en í byrjun þessa árs lék hann fjóra leiki á lánssamningi hjá Newcastle.

Slimani er fyrsti alsíringurinn til að ganga í raðir Fenerbahce en liðið hafnaði í öðru sæti tyrknesku deildarinnar á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.