Á morgun verður fundur hjá KSÍ með félögum í Pepsi Max- og Lengudeildinni þar sem áætlað er að fara yfir sóttvarnarreglur þegar fótboltinn fer aftur af stað.
Íþróttastarf er að hefjast aftur nú þegar létt verður á takmörkunum eftir að hópsmit kom upp.
Síðar í vikunni verður fundað með félögum í öðrum deildum og einnig er áætlað að funda með fjölmiðlum.
Íþróttastarf er að hefjast aftur nú þegar létt verður á takmörkunum eftir að hópsmit kom upp.
Síðar í vikunni verður fundað með félögum í öðrum deildum og einnig er áætlað að funda með fjölmiðlum.
Mótanefnd KSÍ ræddi um þann möguleika að leyfi fáist til að hefja keppni í mótum sumarsins aftur föstudaginn 14. ágúst.
Nefndin ákvað, ef leyfi fæst, að hefja keppni aftur samkvæmt fyrirliggjandi dagskrá föstudaginn 14. ágúst í meistaraflokki, 2. flokki og 3. flokki.
Leikjum sem þegar hefur verið frestað verður fundinn nýr leiktími og tilkynnt sérstaklega. Ekki er hægt að útiloka að öðrum leikjum í hlutaðeigandi mótum verði breytt ef þess gerist þörf til að koma fyrir frestuðum leikjum.
Sjá einnig:
Næstu leikir (af heimasíðu KSÍ)
Athugasemdir