Sílemaðurinn Alexis Sanchez meiddist í 2-1 sigri Inter á Bayer Leverkusen er liðið skaut sér áfram í undanúrslit Evrópudeildarinnar en það ríkir óvissa með þátttöku hans í undanúrslitunum.
Sanchez eyddi tímabilinu á láni hjá Inter frá Manchester United áður en ítalska félagið keypti hann á dögunum.
Hann var ekki með Inter í 16-liða úrslitunum á dögunum en kom inná sem varamaður á 64. mínútu í gær.
Sanchez meiddist undir lok leiksins og þurfti að fá aðhlynningu og gat því ekki klárað leikinn.
Það ríkir mikil óvissa hvort hann verði með í undanúrslitum keppninnar en liðið mætir Basel eða Shakhtar Donetsk eftir sex daga.
Athugasemdir