11.08.26 - 21:23
Brynjar Ingi Erluson
3. deild: Björn Daníel á skotskónum í sigri Sindra

Björn Daníel skoraði fjórða deildarmark sitt á tímabilinu

Mynd: Sindri

Sindri 3 - 1 Ýmir
1-0 Björn Daníel Sverrisson ('3 )
2-0 Abdul Bangura ('44, víti )
2-1 Þórður Carl Guðmundsson ('86 )
3-1 Jóhann Frans Ólason ('89 )
Rautt spjald: Fredrick Delali ('78, Sindri )

Björn Daníel Sverrisson, spilandi þjálfari Sindra, komst á blað þegar liðið vann mikilvægan 3-1 sigur á Ými í 3. deild karla í dag.
FH-ingurinn tók við Sindra undir lok síðasta árs og hefur leikið tíu deildarleiki samhliða þjálfarastarfinu í sumar.
Hann skoraði sitt fjórða mark á tímabilinu þegar hann kom Sindra yfir strax á þriðju mínútu. Abdul Bangura tvöfaldaði síðan forystuna úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks.
Fredrick Delali fékk rautt spjald í liði Sindra á 78. mínútu og Þórður Carl Guðmundsson nýtti liðsmuninn átta mínútum síðar þegar hann minnkaði muninn í eitt mark.
Jóhann Frans Ólason slökkti þó vonir Ýmismanna undir lokin þegar hann skoraði þriðja mark Sindra og gulltryggði sigurinn.
Stigin voru gríðarlega mikilvæg fyrir Sindra sem er í næstneðsta sæti með 14 stig, aðeins einu stigi á eftir Ými sem situr í tíunda sæti.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víðir | 22 | +34 | 46 |
| 2 | KH | 22 | +35 | 44 |
| 3 | Reynir S. | 22 | +19 | 42 |
| 4 | Tindastóll | 22 | +15 | 42 |
| 5 | KV | 22 | -12 | 30 |
| 6 | Höttur | 22 | -2 | 29 |
| 7 | Sindri | 22 | -6 | 28 |
| 8 | KF | 22 | -7 | 27 |
| 9 | Ýmir | 22 | -5 | 26 |
| 10 | Augnablik | 22 | -10 | 25 |
| 11 | KÁ | 22 | -29 | 22 |
| 12 | Árbær | 22 | -32 | 9 |