Fotbolti.net
11.08.26 - 21:44
Elvar Geir Magnússon

Ronaldo og Georgina gengu í það heilaga (Staðfest)

Ronaldo og Georgina eru hjón.

Ronaldo og Georgina eru hjón.

Canon

Mynd: EPA

Ofurstjarnan Cristiano Ronaldo og Georgina Rodriguez eru gift en portúgalski fótboltamaðurinn birti mynd á samfélagsmiðlum í kvöld þar sem sjá má hendur þeirra með hringa.

Parið hefur verið saman í áratug en þau giftust í fámennri athöfn í Cascais í Portúgal. Börnin þeirra fimm voru með þeim.

Ronaldo var leikmaður Real Madrid þegar hann og Georgina kynntust en hún starfaði þá í Gucci búðinni í spænsku höfuðborginni.

Georgina hefur orðið að samfélagsmiðlastjörnu og Netflix þættirnir "I am Georgina" komu út á Netflix fyrir nokkrum árum. Ronaldo staðfesti það í sumar í viðtali við vin sinn, fjölmiðlamanninn Piers Morgan, að brúðkaup væri á næsta leyti.

Ronaldo er 41 árs og spilar í dag fyrir Al-Nassr í Sádi-Arabíu og portúgalska landsliðið.


Georgina Rodriguez.

Georgina Rodriguez.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.