11.08.26 - 20:52
Brynjar Ingi Erluson
Þjálfarateymi Víkings ætlar að hlaupa fyrir Ingvar

Ingvar Jónsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingvar Jónsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þjálfarateymi Íslandsmeistara Víkings ætlar að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar Ingvari Jónssyni, markverði félagsins.
Ingvar hefur gegnt lykilhlutverki hjá Víkingi undanfarin ár en greindist með krabbamein fyrr á þessu ári og ekki verið með liðinu síðustu mánuði.
Hann hefur gefið félaginu mikið, innan vallar sem utan, og skipar stóran sess í Víkingsfjölskyldunni. Nú vilja Víkingar standa þétt við bakið á Ingvari og fjölskyldu hans á þessum erfiðu tímum.
Þjálfarateymi Víkings ætlar því að hlaupa þeim til styrktar í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka.
„Við hvetjum alla Víkinga, knattspyrnuunnendur og annað góðfúslegt fólk til að leggja okkur lið og styðja við söfnunina – öll framlög, stór sem smá, skipta sköpum!“ segir í tilkynningu Víkinga.
Hægt er að styrkja málefnið með því að smella á tengilinn
Margir fyrrum samherjar hans munu einnig hlaupa fyrir hann og fjölskyldu hans, en þar má nefna Baldur Sigurðsson, Halldór Orra Björnsson, Hörð Árnason og Pálma Rafn Sigurbjörnsson.