Fotbolti.net
11.08.26 - 21:48
Brynjar Ingi Erluson

Snýr aftur til Coventry (Staðfest) - „Alltaf dreymt um að spila með félaginu í úrvalsdeildinni“

Snýr aftur til Coventry (Staðfest) - „Alltaf dreymt um að spila með félaginu í úrvalsdeildinni“
Canon

Mynd: Coventry City

Brasilíski sóknartengiliðurinn Gustavo Hamer er kominn aftur til Coventry City frá Sheffield United.
Hamer er 29 ára gamall og lék með Coventry frá 2020 til 2023. Þar áður spilaði hann með Feyenoord og PEC Zwolle í Hollandi þar sem hann er uppalinn.

Hann varð fljótt í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Coventry og var valinn besti leikmaður liðsins tvö tímabil í röð.

Hamer var seldur til Sheffield United árið 2023 og lék þar undanfarin þrjú tímabil. Nú er hann kominn aftur til Coventry og hefur skrifað undir langtímasamning.

Kaupverðið er talið vera um sex milljónir punda.

„Ég er í skýjunum því mig langaði ólmur að koma aftur. Mig hefur alltaf dreymt um að spila í ensku úrvalsdeildinni með Coventry og því var það sérstök stund þegar félagið hafði samband. Ég gæti ekki verið ánægðari.“

„Ástin og hlýjan sem stuðningsmennirnir hafa sýnt mér er ótrúleg. Nú vil ég gefa eitthvað til baka með mörkum, stoðsendingum og góðri frammistöðu.“

„Maður getur auðvitað ekki skorað eða lagt upp í hverjum einasta leik. Ég get hins vegar lofað því að leggja mig allan fram fyrir merkið, félagið og stuðningsmennina,“ sagði Hamer.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.