Fotbolti.net
11.09.12 - 15:00
Elvar Geir Magnússon

Karagounis til Fulham (Staðfest)

Karagounis til Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Giorgos Karagounis, fyrirliði gríska landsliðsins, hefur skrifað undir hjá Fulham á frjálsri sölu.

Þessi 35 ára miðjumaður lék síðasta með Panathinaikos í Grikklandi.
„Ég er í skýjunum með samninginn við Fulham og hlakka til að takast á við þá áskorun að leika í ensku úrvalsdeildinni,\" segir Karagounis.

Fulham hafði misst þá Moussa Dembele og Clint Dempsey til Tottenham í félagaskiptaglugganum og var þunnskipað á miðjunni.

Karagounis hefur einnig leikið fyrir Inter og Benfica en hann lék með gríska landsliðinu sem vann EM 2004 í Portúgal. Hann hefur leikið 120 landsleiki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.