Fotbolti.net
11.09.17 - 12:00
Fótbolti.net

Hófið - Næstmarkahæsti maður FH með eitt mark!

Uppgjör 18. umferðar

Callum Williams fékk beint rautt fyrir mjög ljótt brot.

Callum Williams fékk beint rautt fyrir mjög ljótt brot.

Canon

Mynd: Ingunn Hallgrímsdóttir

18. umferð Pepsi-deildarinnar var leikin um helgina og var stuð og stemning á völlunum. Ekkert getur stöðvað verðandi Íslandsmeistara Vals og aðeins á eftir að setja (Staðfest) við titilinn. Langbesta lið sumarsins.
Fólk fékk mest fyrir 2.000 kallinn: Það er bara einn leikur sem kemur þarna til greina! Ótrúlegt 4-4 jafntefli Víkings Ó. og Fjölnis. Fólk sem hefur mikinn áhuga á hörmulegum varnarleik fékk allavega nóg fyrir peninginn þar. Guð minn góður! Ólsarar komust í 3-0 í leiknum en Fjölnir skoraði þá fjögur mörk í röð.

EKKI lið umferðarinnar:
Það er ekki oft sem markvörður sem ver vítaspyrnu kemst í EKKI liðið en mörkin sem Rajko fékk á sig gegn ÍA voru skelfileg. Í bæði skiptin missti hann bolta frá sér og heimamenn refsuðu.

Fremstu menn Breiðabliks voru hrikalegir gegn Val og KR-ingar eiga sína fulltrúa eftir að hafa tapað á niðurlægjandi hátt 0-3 fyrir ÍBV.


Fögnuður umferðarinnar: Kristján Guðmundsson steig trylltan dans í boðvangi ÍBV á KR-velli þegar hans menn tryggðu sér gríðarlega mikilvæg þrjú stig.

Elliheimili umferðarinnar: „Þetta er elgamalt lið. Annað árið í röð eru þeir elsta lið á norðurlöndum. Kannski hefur að eitthvað að segja,\" sagði Óskar Hrafn í Pepsi-mörkunum þegar rætt var um þreytuna sem virðist vera í KR-liðinu.

Erfiða verkefni umferðarinnar: Röddin, Páll Sævar, var í fríi um helgina og var því annar maður látinn í það að vera vallarþulur. Afleysingamaðurinn fékk það ómögulega verkefni að þurfa að velja mann leiksins úr röðum KR.

Atvik umferðarinnar: Veikar titilvonir Stjörnunnar urðu að engu þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Víking Reykjavík. Haraldur Björnsson, markvörður Stjörnunnar, var allt annað en sáttur við Gunnar Jarl dómara en Haraldi fannst brotið á sér í öðru marki Víkinga.

Alvöru ástríða í Halla Björns eftir leik í gær. Hann bauð fréttamanni #Fotboltinet að prófa þessar aðstæður pic.twitter.com/sTyyd5r7dA

— Fótbolti.net (@Fotboltinet) September 11, 2017


Ummæli umferðarinnar: Óli Jó sagði að Valsmenn hafi vitað að í liði Breiðabliks væru leikmenn sem nenna ekki að hlaupa í 90 mínútur.

\"Þetta var svo löng spurning að ég er búinn að gleyma henni\" #fotboltinet pic.twitter.com/I3nWpMJBcw

— Fótbolti.net (@Fotboltinet) September 11, 2017


Dómari umferðarinnar: Vilhjálmur Alvar fékk 9 fyrir dómgæsuna í leik Víkings Ó. og Fjölnis.

Lykilmaður umferðarinnar: Hvar væri FH án Steven Lennon? Hann er eini í núverandi leikmannahópi FH (eftir að Kristján Flóki Finnbogason fór) sem getur skorað! Lennon er með 12 mörk í deildinni og svo koma fjórir leikmenn með eitt mark. Sturluð staðreynd.

Það virðist lítið eftir á tanknum hjá Atla Viðari Björnssyni og Atla Guðnasyni en sá fyrrnefndi hefur ekki komist á blað í sumar.

Nokkrir sem brosa eftir umferðina:
- Kannski ekki breitt bros... en Skagamenn geta brosað eftir að hafa náð að hanga lengur á líflínunni með sigri gegn KA.
- Það var mikill léttir fyrir Ævar Inga að ná að skora en hann viðurkenndi að sumarið hafi tekið á andlega.
- Sindri Snær Magnússon, miðjumaður ÍBV, elskar að spila gegn KR. Öll þrjú deildarmörk hans í sumar hafa komið gegn KR.
- Kristinn Ingi Halldórsson skoraði sigurmark Vals gegn Breiðabliki og eru Valsmenn nú með meira en níu og hálfan fingur á bikarnum.

Nokkrir sem geta verið ansi pirraðir eftir umferðina:
- Ejub Purisevic var mjög pirraður yfir varnarleik Víkings Ó. Liðið hefur verið að hleypa mörgum mörkum inn í síðustu umferðum.
- Stuðningsmenn KR.
- Rúnar Páll. Titilvonirnar eru endanlega dauðar.

Endum þetta á Twitter - #fotboltinet

Hef aldrei séð nokkurn vera jafn mikill Rainman í sjónvarpi. #pepsi365 pic.twitter.com/dE6p7L4rh4

— Logi Bergmann (@logibergmann) September 10, 2017

Hægur þroski https://t.co/QHeulvKLTD #fotboltinet

— Fótbolti.net (@Fotboltinet) September 10, 2017

4 leikir eftir, 9 stiga forysta. KA-Valur í næstu umferð. Akureyrarvöllur. Þar hefur Óli Jó áður orðið meistari #pepsi365 #ólijó #meistari

— Leifur Gardarsson (@LGardarsson) September 10, 2017

Vel gert Valur. Eitthvað fallegt við það líka að Kristinn Ingi hafi klárað dæmið í kvöld. #fotboltinet

— Daníel Geir Moritz (@DanelGeirMoritz) September 10, 2017

What do Breidablik need to do to make these always good performances into wins? Must be frustrating for fans. #fotboltinet

— Lucas Arnold (@FRfotboltiLucas) September 10, 2017

Stöð 2 Sport, blautasta sætið 💦💦 #pepsi365 #fotboltinet pic.twitter.com/i86R5em6xS

— Big Baby (@Storabarnid) September 10, 2017

Ein hress staðreynd: Kristinn Ingi og Milos voru samherjar í Hamri 2009 #fotboltinet #pepsi365

— Ómar Ingi (@OmarIngiGud) September 10, 2017

Sonur Frank Rijkaard staddur á leik VíkÓ og Fjölnis. #fotboltinet pic.twitter.com/wlms2ZFfvs

— Ármann Örn (@icelanicwonder) September 9, 2017

Hvílík skömm að sjá Pálma Rafn með fyrirliðaband KR. Drullaðu þér úr klúbbnum mínum has been drasl #fotboltinet

— Halldór Guðmundsson (@gu_halldor) September 9, 2017

Þar sem Willum virðist hafa meiri áhuga á þingmennsku en KR, vill ég bara minna @KRreykjavik á að Rúnar Kristinss er á lausu #fotboltinet

— Hafþór Gerhardt (@hafthorgh) September 9, 2017

Mèr finnst ÍBV ekki vera að fá það Credit sem þeir eiga skilið, búnir að valta yfir FH og KR #fotboltinet

— Úlfur karlsson (@ulfur_karlsson) September 9, 2017

Þegar Kristján Guðmunds hefur 8+ daga í undirbúning fyrir leik. Þá tapar hann aldrei, aldrei!! #fotboltinet #teigurinn #pepsi365

— Garðar Örn Arnarson (@gardarorn23) September 9, 2017

Willum getur bara ekkert notað Guðmund Andra en Garðar Jó fær að koma inná til að gera ekkert 😂😂🙈🙈 #fotboltinet #pepsi365

— Hreinn Gústavsson (@hreinngu) September 9, 2017

Menn eru ekki alltaf sammála í þessum bransa.

Menn eru ekki alltaf sammála í þessum bransa.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aðstoðarþjálfarar í skammarkróknum.

Aðstoðarþjálfarar í skammarkróknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH vann nauman sigur.

FH vann nauman sigur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Orri lætur dómarann heyra það.

Orri lætur dómarann heyra það.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skagamenn halda í veika von.

Skagamenn halda í veika von.

Canon

Mynd: Ingunn Hallgrímsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.