Fotbolti.net
11.09.25 - 18:51
Ívan Guðjón Baldursson

Evrópudeild kvenna: Vigdís Lilja skoraði í stórsigri

Evrópudeild kvenna: Vigdís Lilja skoraði í stórsigri
Canon

Mynd: Anderlecht

Kvennaboltinn
Aris 0 - 5 Anderlecht
0-1 A. Delabre ('16)
0-2 M. Cardia ('27)
0-3 Vigdís Lilja Kristjánsdóttir ('33)
0-4 R. Jonusaite ('56)
0-5 M. Baert ('77)
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir var í byrjunarliðinu hjá Anderlecht og skoraði eitt af fimm mörkum liðsins í stórsigri í Grikklandi í dag.

Anderlecht rúllaði yfir Aris á útivelli og er í frábærri stöðu fyrir seinni leik liðanna. Sigurliðið fer áfram í úrslitaleik um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Vigdís er nýlega gengin til liðs við Anderlecht og hefur farið vel af stað hjá nýju félagi.

Vllaznia lagði þá Kolos Kovalivka frá Úrakínu að velli er liðin mættust í Albaníu.

Ajax er að lokum að spila við Sturm Graz þessa stundina og er staðan markalaus þegar hálftími er eftir af leiknum í Hollandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.