Fotbolti.net
11.10.12 - 07:00
Magnús Már Einarsson

Úlfar Hrafn áfram hjá Val (Staðfest)

Úlfar Hrafn Pálsson.

Úlfar Hrafn Pálsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úlfar Hrafn Pálsson mun leika áfram með Val næsta sumar en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í gærkvöldi. Úlfar var í láni hjá Val frá Haukum á nýliðnu tímabili en nú er ljóst að hann mun leika áfram á Hlíðarenda næsta sumar.
Magnús Gylfason tók við þjálfun Vals í gær og í kjölfarið hefur Úlfar ákveðið að vera áfram hjá félaginu.

,,Ég var í rauninni að bíða bara og sjá hver myndi þjálfa liðið. Ég þekki Magnús Gylfason vel og líst vel á það þó ég muni auðvitað sakna Kristjáns og Freysa mikið,\" sagði Úlfar við Fótbolta.net.

Úlfar verður 24 ára í næstu viku en hann spilaði þrettán leiki í vinstri bakverðinum hjá Val á nýliðnu tímabili.

Ásgeir Þór Ingólfsson var einnig í láni hjá Val frá Haukum á síðasta tímabili en hann mun leika í Hafnarfirði á nýjan leik næsta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.