Fotbolti.net
11.10.12 - 16:36
Arnar Daði Arnarsson

Ingólfur Sigurðsson í Val (Staðfest)

Ingólfur Sigurðsson í Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingólfur Sigurðsson hefur gengið til liðs við Val. Þetta var staðfest á heimasíðu Vals nú rétt í þessu. Ingólfur er uppalinn í Val en gengur til liðsins frá Lyngby í Danmörku þar sem hann lék síðast.
Ingólfur, sem er 19 ára gamall gekk til liðs við Lyngby frá Val á síðasta ári, en liðið lék þá í efstu deild í Danmörku.

Hann fékk fá tækifæri hjá félaginu, sem síðar féll niður í fyrstu deildina, en hann hafði leikið nokkra æfingaleiki með liðinu og var partur af aðalliði Lyngby.

,,Mér leist vel á þær skýru hugmyndir sem stjórnarmenn Vals hafa um félagið og framtíðina, ég er mjög glaður að fá að taka þátt í þessu verkefni og hlakka til sumarsins og samstarfsins með nýjum þjálfara,\" er haft eftir Ingólfi á heimasíðu Vals.

Ingólfur er fyrsti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Vals eftir að Magnús Gylfason var kynntur sem nýr þjálfari Vals í gær.

Heimild: Heimasíða Vals

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.