Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fim 11. október 2018 22:16
Elvar Geir Magnússon
Jói Berg: Reif í hendina á Pogba og sagði honum að sleppa Rúnari
Icelandair
Víðir Reynisson öryggisstjóri skarst í leikinn og reif Jóhann Berg í burtu þegar hann fór að rífast við Paul Pogba.
Víðir Reynisson öryggisstjóri skarst í leikinn og reif Jóhann Berg í burtu þegar hann fór að rífast við Paul Pogba.
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
„Þegar þú ert kominn 2-0 yfir á móti heimsmeisturunum þá viltu klára leikinn. En þegar við lítum til baka eftir nokkra daga eigum við eftir að horfa á fullt af jákvæðum punktum, sérstaklega eftir síðustu tvo leiki. Þetta var klárlega skref fram á við," sagði Jóhann Berg Guðmundsson eftir 2-2 jafntefli Íslands við Heimsmeistara Frakka í Guingamp í kvöld.

Lestu um leikinn: Frakkland 2 -  2 Ísland

Ísland skoraði tvö mörk í leiknum, átti fleiri færi og var hættulegt í föstum leikatriðum. Spilaði semsagt eins og landsliðið sem við eigum að þekkja annað en í tapleikjunum í september.

„Þetta var eins og í gamla daga, síðustu tveir leikir voru erfiðir en það var nýr þjálfari með nýjar áherslur. Það tekur alltaf tíma hjá öllum liðum, við fengum skell á móti Sviss en vorum töluvert betri á móti Belgíu og enn betri í dag. Þetta er allt í rétta átt og frábært að fá Sviss aftur á mánudaginn. Vonandi getum við náð í góð úrslit þar."

Allt sauð uppúr í lok leiksins þegar Rúnar Már Sigurjónsson tæklaði Mbappe sem var á mikilli ferð í átt að marki Íslands. Jóhann Berg blandaði sér í lætin.

„Ég sá bara Rúnar aleinan með allan franska bekkinn yfir sér, ég ákvað því að fara og hjálpa honum. Ég sá að Pogba hélt í hann og reif í hendina á honum og sagði honum að sleppa honum. Ég er bara mættur til að passa liðsfélagana og passa að það sé ekkert vesen."



Athugasemdir
banner
banner
banner