Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   fim 11. október 2018 22:02
Elvar Geir Magnússon
Rúnar Alex: Ákvað að gambla smá
Icelandair
Rúnar Alex í leiknum í kvöld.
Rúnar Alex í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
„Ég er mjög sáttur með að hafa geta hjálpað liðinu í fyrri hálfleik og er ánægður með þetta," sagði Rúnar Alex Rúnarsson sem lék fyrri hálfleik í marki Íslands í 2-2 jafnteflinu við Frakka í kvöld og hélt hreinu sinn tíma.

Lestu um leikinn: Frakkland 2 -  2 Ísland

„Að halda hreinu og gefa vörninni smá öryggi er það sem ég vil alltaf gera og ég er ánægður með að það hafi heppnast hjá mér í kvöld."

Rúnar Alex varði frábærlega frá Dembele í fyrri hálfleiknum.

„Það var góð varsla, ég var búinn að sjá að sendingin var að koma og ákvað að gambla smá með því að leggja aðeins fyrr af stað. Það skilaði sér þarna og var mjög ánægjulegt."

Nánar er rætt við Rúnar Alex í sjónvarpinu að ofan. Þar ræðir hann að liðið hafi svarað eftir leikina í september sem töpuðust stórt.

„Við sýndum að við erum ekkert hættir og við ætlum að byggja ofan á þetta. Það er glatað að hafa misst þetta niður en við vorum að spila á móti Heimsmeisturunum og fyrirfram hefðu allir tekið 2-2 jafntefli."
Athugasemdir
banner
banner