Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 11. október 2021 16:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Wijnaldum: Get ekki sagt að ég sé fullkomlega ánægður
Mynd: EPA
Gini Wijnaldum gekk í raðir PSG frá Liverpool í sumar á frjálsri sölu. Wijnaldum hefur ekki verið í jafn stóru hlutverki og hann vonaðist eftir hjá PSG.

Wijnaldum er þrítugur hollenskur miðjumaður sem hefur spilað 502 af 1080 mínútum PSG í öllum keppnum til þessa. Hann hefur komið við sögu í ellefu af tólf leikjum liðsins.

Það er mikil breidd hjá PSG. Marco Verratti, Ander Herrera, Idrissa Gueye, Leandro Paredes, Danilo og Rafinha eru í samkeppni við Wijnaldum.

„Ég get ekki sagt að ég sé fullkomlega ánægður," sagði Wijnaldum. „Staðan er ekki sú sem vildi en svona er fótbolti. Ég verð að læra að eiga við þetta. Ég er tilbúinn að berjast fyrir mínu sæti. Ég verð að vera jákvæður og vinna hart að því að tryggja mér sæti í liðinu. Það tekur tíma að venjast því að spila minna eftir mörg ár þar sem ég spilaði mikið," sagði Wijnaldum.
Athugasemdir
banner
banner
banner