Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
   fös 12. janúar 2024 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Situr eftir hvað það var ótrúlega gaman að spila í Mosó"
Í leik með Aftureldingu sumarið 2021.
Í leik með Aftureldingu sumarið 2021.
Mynd: Raggi Óla
Miðjumaðurinn Anton Logi Lúðvíksson samdi nýverið við Haugesund í Noregi eftir að hafa slegið í gegn með Breiðabliki hér heima.

Anton Logi er bara tvítugur en það var umtalað snemma að þarna væri hæfileikaríkur leikmaður á ferðinni. Hann þurfti þó að bíða eftir tækifærinu sínu í Breiðabliki og fór á láni sumarið 2021 í Aftureldingu í Lengjudeildinni. Sú lánsdvöl hjálpaði honum mikið.

„Það var geggjað, klárlega eitt skemmtilegasta tímabilið í fótboltanum. Það var hrikalega gaman. Við spiluðum skemmtilegan fótbolta og hópurinn var ótrúlega skemmtilegur. Þetta var upp og niður hjá okkur seinni hlutann en það situr eftir hvað það var ótrúlega gaman að spila í Mosó," sagði Anton Logi í samtali við Fótbolta.net á dögunum.

Hann vann sér inn fast sæti í byrjunarliði Breiðabliks á síðasta tímabili og er núna farinn út í atvinnumennsku. Spennandi verður að fylgjast með honum þar.

„Við vorum Íslandsmeistarar 2022 og með frábært lið, mikla samkeppni. Ég var ekki í alltof stóru hlutverki þá en svo næ ég góðu undirbúningstímabili og er búinn að vera heill í töluverðan tíma núna. Ég byrja mótið sterkt, lendi í smá meiðslum og fæ svo traustið. Mér fannst það skipta helstu máli fyrir mig, að fá að spila marga leiki."

Hér fyrir neðan má sjá viðtalið í heild sinni hér að neðan en þar ræðir Anton meira um síðasta tímabil með Breiðablik og fjölhæfni sína inn á vellinum.
Anton Logi: Held að allir í félaginu séu spenntir að hrista upp í þessu
Slapp
banner