Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 12. febrúar 2020 18:45
Aksentije Milisic
Ceballos: Vil endurgjalda Arsenal traustið
Mynd: Getty Images
Hinn 23 ára gamli Dani Ceballos segir að hann vilji endurgjalda Arsenal traustið og hjálpa liðinu að ná sæti í Meistaradeild Evrópu.

Arsenal fékk Ceballos á láni frá Real Madrid fyrir tímabilið en leikmaðurinn er þakklátur fyrir Arsenal að hafa trú á honum. Hann hefur verið mikið meiddur í vetur.

„Arsenal tók sénsinn á mér og ég vil endurgjalda félaginu traustið og leggja mitt að mörkum til þess að ná markmiðunum. Ef ég næ því þá mun það þýða mikið fyrir mig eftir þessi meiðsli sem ég er búinn að glíma við," sagði Spánverjinn.

„Við erum tíu stigum á eftir fjórða sætinu og núna verðum við að róa allir í sömu átt og gefa allt í hlutina það sem eftir er og ná markmiðum okkar. Á persónulegu nótunum þá er ég að koma til baka eftir alvarleg meiðsli. Þetta eru þau fyrstu sem ég hef haft síðan ég varð atvinnumaður."

Ceballos sagði að honum fannst leiðinlegt að hann gæti ekki hjálpað Unai Emery, fyrrverandi stjóra Arsenal, að halda starfi sínu en það var hann sem fékk hann til Englands.
Athugasemdir
banner
banner
banner